Getið alltaf send post á lexi@lexi.is
Munið svo að skrá ykkur á postlistan til að fá þessar fréttir beint í tölvupóstinn.
Flýtilyklar
Nýjustu fréttir
-
Flott video
Almennt - þriðjudagur 9.mar.10 16:19 - Vefstjóri - Lestrar 64 - Athugasemdir (0)Hér er flott kynningar video af Polaris 2011
-
Þjófabylgja ?
Almennt - þriðjudagur 9.mar.10 16:14 - Vefstjóri - Lestrar 74 - Athugasemdir (0)Hjólum stolið !!!!!!!
Um helgina, 6-7 mars, var 2 hjólum stolið við Esjuberg, þetta eru 2 stk.
Hondur, crossari og Super Moto.
Annað hjólið er: Honda CRF 450f, árgerð 2008, með Super Moto setup, stórum bremsum, bláum gorm, mjög sérstakt hjól.
Hjólið var á skrúfudekkjum þegar því var stolið.
Hitt hjólið er Honda CRF 250f, árgerð 2007.
Lesa meira
-
Hjólum stolið
Almennt - þriðjudagur 9.mar.10 16:12 - Vefstjóri - Lestrar 58 - Athugasemdir (0)KTM 250sx árg.2002 var stolið af verkstæði í mosó aðfaranótt laugardags. Hjólið er í ótrúlega góðu ástandi enda lítið notað. Á vinnstri hlið aftast hjá afturbretti er stensluð mynd af andliti/púka í rauðu á svart plastið. Hjólið er alveg eins og þetta hjól á myndinni nema það var búið að setja svartar handahlýfar á stýrið og komið með nýrri KTM grip(orange og grá).
Lesa meira
-
Tucker Hibbert fer til Mala
Almennt - fimmtudagur 4.mar.10 15:11 - Vefstjóri - Lestrar 155 - Athugasemdir (1)Tucker Hibbert fer til Svíþjóðar að reyna negla HM titilinn.
HM verður haldið í Mala og mun kallinn verða fyrsti USA Kongurinn sem kemur yfir í Evrópu til að sópa öllu upp.
Spurningin er hverngi þetta fyrirkomulag og brautir munu spila fyrir kallinn, en Emil Öhman og Peter Eriksson eru í fantaformi og verður þetta Epískur viðburður.
Ertu ekki örugglega að koma með ?
Minni á að okkar bestu keyrarar eru að fara keppa fyrir íslands hönd.
Verð á flugi 55 kall, bara drífa sig með ...
-
Ískross
Almennt - fimmtudagur 4.mar.10 14:58 - Vefstjóri - Lestrar 15 - Athugasemdir (0)Sælir !
Náði loks að finna tíma til að klippa saman video frá annarri umferðinni í Ískrossinu sem fór fram hér í Reykjavík fyrir 2 helgum !
Videoið er að finna á síðunni minni www.jonni.is og þar er einnig kóði til að setja þetta á fleiri síður !
Bestu kveðjur !
Jonni
-
Krísuvík
Almennt - fimmtudagur 4.mar.10 11:19 - Vefstjóri - Lestrar 235 - Athugasemdir (0)Fórum Breiðdal inn að Krísuvík seinnipartinn í dag.
Færið var ágætt, þó steinar inn á milli.
Smá snjólög í viðbót og þá er komið ágætt leiksvæð.Innsent Aggi
-
Hekla
Almennt - miðvikudagur 3.mar.10 09:04 - Vefstjóri - Lestrar 210 - Athugasemdir (0)Fórum nokkrir á Heklu og nágreini Mánudaginn 1 Mars
Innsent af forsíðu lexi.is Hjalti
-
Sérsveitin norður
Almennt - mánudagur 1.mar.10 14:04 - Vefstjóri - Lestrar 210 - Athugasemdir (0)Sèrsveitin er komin norður, fylgist með myndunum ì kvöld og næstu daga à sìðunni okkar, þessi mynd tekin á leið til Grenivíkur í gær, þurfum ekkert að ræða það neitt frekar.
-
Ellingsen
Almennt - mánudagur 1.mar.10 14:00 - Vefstjóri - Lestrar 31 - Athugasemdir (0)Sælir allir
Eins og margir ykkar vita þá er Ellingsen nú umboðsaðili fyrir allar vörur Bombardier ásamt góðum ferðatækjaumboðunum; Fleetwood, Hymer, Adria, Aliner, Camplet og til að þjónusta þessar vörur sem best þá höfum við sett upp nýtt þjónustuverkstæði í Vatnagörðum 12 þar sem saman eru komnir reynslumestu menn í öllum þessum sportum. Að þessi tilefni langar okkur til að bjóða viðskiptavinum að koma í kaffi og kleinur á fimmtudaginn 4. mars frá kl 15-20 og fá ráðgjöf hjá okkur og sjá nýju aðstöðuna okkar í Vatnagörðum 12. Einnig verðum við með 20% afslátt af nýjum beltum og grínverð á uppítökubeltum 9.900 -19.900 kr. Þess má geta að verkstæðið er alhliða verkstæði fyrir allar tegundir.
Með von um að sjá sem flesta.
Kv Halldór
-
Fjarðarheiði
Almennt - laugardagur 27.feb.10 01:18 - Vefstjóri - Lestrar 0 - Athugasemdir (0)Bjólfurinn / Fjarðarheiði
Fór rúnt í sl viku í mjög fínu færi, uppá Bjólfinn sem er fyrir þá sem ekki þekkja fjall fyrir ofan Seyðisfjörð (1085m.) Síðan var krúsað yfir Vestdalsvatnið og niður í Bárðastaðadal í Loðmundarfirði þar var lítill snjór. Færi yfir höfuð gott og veðrið fínt, nú hefur snjóað heilmikið á þessum slóðum síðustu daga.
Kveðjur / Björn
-
Snocrossbraut á Akureyri
Almennt - fimmtudagur 25.feb.10 14:56 - Vefstjóri - Lestrar 414 - Athugasemdir (1)Nú er hvíta gullið að fylla öll vit hér fyrir norðan og menn tóku sig til og tróðu þessa líka stórkostlegu Snocross braut í kvöld, brautin er á grunni motocross brautarinnar og er alveg svakalega girnileg, 80-90 cm púður troðið í drasl og eftir stendur prjónfæri allsvakalegt.
Ég sendi hér máli mínu til stuðnings nokkrar myndir, einnig væri gaman að menn sem hafa áhuga á að keppa í Snocrossi í vetur skrifi athugasemd hér við myndirnar því það er jafnvel hægt að skella á móti með litlum fyrirvara þegar færið er svona frábært, það yrði að sjálfsögðu kvöldmót í bestu fáanlegu lýsingu, svo góðri að F1 brautin í Singapor á ekki séns, við getum sem sagt skellt móti á en það fer eftir hversu margir hafa áhuga á að vera með , við þurfum circa 20 manns svo þetta sé eitthvað fútt í þessu, látið menn vita af þessu ef þeir eru tölvulesblindir.
Stebbi the golden dick
Lesa meira
Tekið af vef KKA.is
-
Slednecks á leiðinni
Almennt - miðvikudagur 24.feb.10 11:00 - Vefstjóri - Lestrar 322 - Athugasemdir (7)Nú er slednecks að koma til í Mars.
Þeir eru að koma til að taka upp Slednecks 13.Slednecks gegnið hefur áður komið í heimsókn en það var 2002 þegar þeir tóku upp fyrir Slednceks 4.
Þeir sem hafa verið nefndir við að koma eru
Planið er að flakka með þá um landið og finna skemmtilega staði til að sleðast um landið og svo vera með freestyle syningu í Reykjavík
-
Vargar á ferð
Almennt - þriðjudagur 23.feb.10 14:54 - Vefstjóri - Lestrar 575 - Athugasemdir (2)Sveitavargar skruppu í renning á Laugardaginn.
Frábært færi nóg af snjó eins og að sést.
Og bara gaman.
Fjöllinn eru frábær við okkur Sveitavarga.
Getið ykkur nú til hvar að þetta er tekið.
-
Snjór fyrir norðan
Almennt - þriðjudagur 23.feb.10 13:05 - Vefstjóri - Lestrar 135 - Athugasemdir (3)Fréttir berast frá helling af snjó fyrir norðan.
Kalla eftir myndum af snjóalögum frá :
Ólafsfirði
Akureyri
Mývatni
Húsavík
Egilstöðum
og víðar ef finnst.
-
Fundur LÍV Reykjavík
Almennt - þriðjudagur 23.feb.10 13:04 - Vefstjóri - Lestrar 85 - Athugasemdir (0)Næsti fundur verður haldinn hjá Stormi, Kletthálsi 15 miðvikudaginn 24.feb kl. 20
Á dagskrá verður m.a. frásagnir og myndir af USA túrum til Jackson Hole og heimsókn til Chris Burandt. Kynning á Polaris 2011 og vörum og þjónustu Storms ásamt fl.
Lesa meira
-
Sérsveitin dugleg
Almennt - mánudagur 22.feb.10 15:41 - Vefstjóri - Lestrar 170 - Athugasemdir (0)Smá skreppitúr á Mýrdals og Eyjafjallajökul. Snjórinn ágætur og veðrið fínt.
Myndir á http://sersveitin.123.is
-
Ekki feimnir
Almennt - föstudagur 19.feb.10 15:37 - Vefstjóri - Lestrar 41 - Athugasemdir (0)Ekii ver feimnir við að láta skoðanir eða athugasemdir við fréttagreinar á forsíðuni.
Til þess er hnappurinn athugasemdir.
Vill endilega virkja sleðamenn, þeir sem ekki geta sleðast, endilega skrifast.
-
Alvöru útrásarvíkingar
Almennt - föstudagur 19.feb.10 13:47 - Vefstjóri - Lestrar 344 - Athugasemdir (0)

















